
|
Lotta og Lottos. |
|
Stórfjölskylda Lottu hélt til Krítar í júlí 2008 til að slappa af og sleikja sólina. Hérna er Lotta hjá Lottos sem (eins og ykkur kannski grunaði) er uppáhaldsveitingastaðurinn hennar.
Hvaða kona þetta er bakvið runnann er okkur ókunnugt um.
Annað og ekki síðra markmið með ferðinni fyrir Möggu og Hjálmar var að læra köfun og verða sér út um PADI köfunarskírteini. |

|
Mússímúss |

|
Bara örlítið meira Ouzo? |

|
Hjónakornin. |

|
Parið á næsta borði |
|
Á Krít er frábær hefð sem felst í því að eftir allar máltíðir er borin fram melóna og smá Ouzo lögg. Það er ekkert sem hjálpar betur við að taka klígjuna. |


|
Hjálmar og Magga melduðu sig í skólann á fimmtudagsmorgni. Blue adventures skólinn sem (þrátt fyrir nafnið) er virðulegur PADI skóli bauð upp á 4 daga köfunarnámskeið til að fá réttindi til að kafa í rúmsjó (Open Water Diving). Fyrsti dagurinn fór að megninu til í að kynna sér námsefnið, taka sundpróf og taka út nýju fínu vatnsheldu myndavélina okkar. |







|
Snorklararnir |

|
Sólarlagið á Ilianthos |






|
Hótelið okkar var íbúðahótelið Ilianthos i Agia Marina sem er rétt vestan við Xania, höfuðborg Krítar. Lotta, Edda og Gulli voru að koma þarna í annað sinn og var tekið með kostum og kynjum. Hótelstjórinn ávarpaði Lottu með nafni og stúlkan í móttökunni dældi í þau ávöxtum og rauðvíni.
Það er kannski erfitt að átta sig á því útfrá myndunum en fyrstu 4 dagana okkar á Krít var óveður: Vindhraði fór yfir 8m/s. Það þýðir líka að það var gaman að leika sér í briminu. |

























|
Hafiði séð blárri augu?? |

|
Kannski hér :) |



|
Feneyska höfnin í Xania |




|
Síðasta daginn í námskeiðinu var loksins hægt að komast út á sjó. Hún Kate bættist í bekkinn og þar vorum við stálheppin því að maðurinn hennar hann Tom var búinn að taka prófið og því lék hann sér að því að snorkla í kringum okkur - og taka myndir.
|







|
OK! Í köfun þýðir þumall upp að maður vilji fara upp. |

|
Hjalli æfir controlled emergency ascent. |

|
Bekkurinn hermir eftir kennaranum. |

|
Magga æfir controlled emergency ascent |

|
Magga æfir að fara í kafagræjurnar í vatninu. |

|
Við fundum kolkrabba en hann vildi ekki koma út að leika. |

|
Sannfærandi með kútinn á milli fóta. |
|
PADI (professional association of diving instructors) eru alþjóðleg samtök sem gefa út námsefni fyrir kafara og þjálfa kennara til að kennar fólki að kafa. Þar sem allt er staðlað er hægt að fara með skírteinið um allan heim og kafa og bæta við sig þekkingu. |

|
Björgunarsund |




|
En þetta þýðir líka að svona námskeið er mjög fagmannlegt og maður er látinn fara í gegnum allskonar æfingar, allt frá því að læra að teygja þegar maður fær sinadrátt í ilina af froskalöppunum yfir í að redda sér úr þeim hremmingum sem geta komið upp (hversu sjaldgæfar sem þær svo eru). |



|
Hjálmar Gíslason, kafari |

|
Margrét Dóra Ragnarsdóttir, kafari |
|
Þegar námskeiðinu lauk með pompi og prakt og við tilbúin í að fara í alvöru köfunarleiðangur, vorum við auðvitað að fara heim. Við getum ekki beðið eftir að kafa næst! Til að halda upp á áfangann var fengið sér smá Ouzo.
En á Krít var ekki annað að gera en að dunda sér við smá snorkl og þá fyrst og fremst að kenna Lottunni á snorklgræjurnar. |

|
Sum Ouzo glös eru stærri |



|
OK! |





|
OK! |
|
Fyrir utan hótelið okkar er hin dularfulla eyja Thodoru sem enginn má heimsækja utan 1 dag á ári, á degi heilags Theodoru. Á eyjunni búa um 100 villigetur (kri kri) en talið er að um 2000 svoleiðis geitur séu eftir á Krít. Á eyjunni er yfir daginn einn vörður sem reynir að verja eyjuna ágangi ferðamanna.
Við tókum okkur einn rúnt í kringum eyjuna og sáum nokkrar geitur og smelltum okkur svo í sjóinn í smá snorkl. |

|
Siglt í kringum Theodoros eyju |

















|
Eðlilegar |

|
Eðlilegar? |

|
Bláu auuuuguuuun þíííííín... |
|
Við skelltum okkur út að borða á indverska veitingastaðnum í Platanias sem að eigin sögn er besti indverski veitingastaðurinn á Krít. Við að vísu sáum enga aðra en hvað um það, maturinn var sælgæti.
Síðan reyndist bara ágæt skemmtun að snorkla í kringum klettana fyrir framan hótelið. Þar mátti sjá ýmislegt, sumt ekki endilega lífrænt. |






















|
(c) Hjálmar Gíslason og Margrét Dóra Ragnarsdóttir 2008 |







